Thursday, June 23, 2011

Designers and their musical muses

Þemað í Júlí útgáfunni af W Magazine er tónlist og stíll. Þetta er ótrúlega sniðugt concept á myndasyrpu, hönnuðir og tónlistargyðjur þeirra:
Kanye West og Rodarte

Karl Lagerfeld & Janelle Monae

Francisco Costa frá Calvin Klein og Ezperanza Spalding

Alexander Wang og Diplo

Proenza Shouler og Yoko Ono

Christofer Bailey frá Burberry og George Craig

Donatella Versace (á hjóli?!) og M.I.A

Frida Gianinni frá Gucci og Florence Welch
x

I want this

Sumarið er að testa mig svakalega, ég hef aldrei eytt sumrinu í Reykjavík...og það er heitt! Ég er farin að halda að ég sé ekki gerð fyrir þetta veður...en þessar vörur eru það:
Hversu sniðugt? Sprey með smá salti í svo "beach wave" lúkkið fæst á notime


Mig langar alveg fáránlega í þetta, aðallega af því að þetta er gel en ekki krem, sem mér finnst ótrúlega sniðugt...sérstaklega fyrir manneskjur sem eru viðkvæmar fyrir kremum

Augnskuggi í túbu, easy

Litaðir liquid linerar!

Monday, June 20, 2011

Alexander McQueen safn

Ég hef alltaf dýrkað Alexander McQueen, og þá sérstaklega vegna þess að í verkum tískuhússins er að finna töfralegt yfirbragð sem getur bæði minnt mann á engla og á djöfla á sama tíma. Hver einasta flík býr yfir margslunginni list og arkitektúr sem lætur fólk sem telur tísku vera ekkert annað en yfirborðskenndan hlut gapa af undrun.





Myndirnar að ofan eru af seinasta collectioninu sem Alexander McQueen hannaði sjálfur, áðuren línan kom út hengdi hann sig í fataskápnum sínum því hann gat ekki sætt sig við dauða móður sinnar, sem dó skömmu áður. Flíkurnar voru sýndar í sal sem aðeins nokkrir af hæst settustu nöfnum innan tískubransans fengu aðgang að.





Að ofan er Fall 2011 RTW Collection, hannað af arftaka Alxanders, henni Söruh Foster.










Fyrsta línan sem Sarah Foster hannaði eftir dauða Alexanders. Það er ekki hægt að segja annað en að hann hafi þjálfað hana vel.
x

Saturday, June 18, 2011

Marc by Marc Jacobs Fall 2011

Orð fá því ekki lýst hversu mikið mig langar í þennann!
Elsku Marc...

Balmain RTW Fall 2011

Ég var mjög hrifin af nýju Balmain línunni, ég hef alltaf haldið uppá metallics og það er gaman hvað Balmain eru óhræddir við að nota slíkt.
Eitt samt: er það bara ég eða eru fyrirsæturnar einstaklega horaðar í þessarri sýningu? Ég get náttúrulega ekki dæmt Freju, Abbey Lee eða Natöshu Poly því þær eru í uppáhaldi hjá mér og nánast í dýrlingstölu, en mér finnst einsog það sé verið að ganga heldur langt í heróín chic útlitinu þegar ég sé hinar fyrirsæturnar... enjá, ég ætla semsagt að hætta að tuða núna og sýna ykkur það sem mér fannst flottast við þetta collection











gordjössssnesssss
x

Friday, June 17, 2011

Eitthvað af fötum/frábær titill dagsins

Ég er að selja eitthvað af fötunum mínum svo ég eigi pening til að borga Blackberry símreikninginn minn. Þetta eru allt mjög flott föt að mínu mati, sumt enn með verðmiðanum á! Landsbyggðarbúinn ég fékk semsagt smá eyðsluæði þegar ég flutti í bæinn í Ágúst.
Elska þennann kjól, Topshop, er í stærð 8 og er enn með verðmiða á sér, er að spá í að láta hann fara á 7000 krónur :)

Cropped toppur úr Topshop, 2000 krónur?

Kjólapeysa úr Topshop, stærð M, hlýr og góður fyrir veturinn. 10.000 :)

Saint Tropez, stærð M, 2500 krónur


Primp peysa, stærð M, 2000 krónur

Kjóll úr chiffon efni úr Topshop, stærð 8, 4000 krónur

 Aftaná

Elska þenann, Topshop stærð 10, 3000 krónur


...Svo koma fleiri myndir bráðum :)
x